Færsluflokkur: Bloggar
28.4.2009 | 23:38
Heiðursmaður og heiðurslaun
Mér finnst afskaplega illa vegið að félaga mínum í Borgarahreyfingunni. Tilgangur með stofnun Borgarahreyfingarinnar var ekki sá að menn fengju ekki þau verðlaun sem þeir hafa unnið fyrir. Hér er verið að blanda tveimur ólíkum hlutum sem eru heiðurslaun og launum fyrir vinnu sem alþingismaður fær. Heiðurslaun eru af allt öðrum toga en hefðbundin laun.
Í tillögum til þingsályktunar á 131 löggjafarþingi 2004-2005 þingskjal 145 kom eftirfarandi fram um heiðurslaun: ,,Við tillögugerðina skal miða við að listamaðurinn hafi varið starfsævi sinni eða verulegum hluta hennar til liststarfa, að hann hafi skarað fram úr við listsköpun sína eða störf hans að listum skilað miklum árangri á Íslandi eða á alþjóðavettvangi, og að listamaðurinn sé kominn á eftirlaunaaldur eða nálgist starfslok."
Ljóst er að Þráinn hefur á undanförnum árum og áratugum skarað fram úr í listsköpun sinni og list hans hefur skilað miklu til allra íslendinga sem hafa notið bóka hans og kvikmynda. Við þurfum listamenn eins og Þráinn sem eru hreinskilnir, hugrakkir og skapandi. Látum hann því í friði með sín listamannslaun og styðjum hann frekar til dáða á hinum nýja orrustuvelli Alþingis.
Þráinn taki ákvörðun um heiðurslaunin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.4.2009 | 14:48
Svikin kosningaloforð?
Eitt af kosningaloforðum vinstri græna var að hafna alfarið aðild að Evrópusambandinu. Klausan hér að neðan er tekin úr stefnuyfirlýsingu vg. en þar segir orðrétt:
,,Samskipti við Evrópusambandið ber að þróa í átt til samninga um viðskipti og samvinnu, m.a. á sviði menntamála, vinnumarkaðsmála og umhverfismála. Hugsanlegur ávinningur af aðild Íslands að Evrópursambandinu réttlætir ekki frekara framsal á ákvörðunarrétti um málefni íslensku þjóðarinnar og er aðild að Evrópusambandinu því hafnað. Hagsmunir fjármagns og heimsfyrirtækja eru í alltof ríkum mæli drifkraftar Evrópusamrunans, miðstýring, skrifræði og skortur á lýðræði einkennir stofnanir þess um of" sjá nánar á
http://www.vg.is/stefna/utanrikisstefna/
Samkvæmt Ögmundi ætla vg. ásamt Samfylkingunni að ráðast í aðildarviðræður við ESB. Spurning er því hvort vg. séu með því móti að svíkja sína flokksbræður sem höfnuðu alfarið aðild að ESB.
Þjóðin verður að ráða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.4.2009 | 22:58
Ekki skila auðu
Höfðu áhrif á röðina á listum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.4.2009 | 00:49
Spilltir stjórnmálamenn
Segir 40 aðila hafa styrkt sig | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Hannes Ingi Guðmundsson
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar